Flýtilyklar
Forsíða
Nýjustu fréttir
Gámaflutningabíl ekið gegn akstursstefnu
„Það náttúrlega liggur alveg fyrir að hann er að fara þarna gegn akstursstefnu og fer þarna í veg fyrir hjólreiðamanninn.“
Þetta segir Sævar Helgi Lárusson, sérfræðingur hjá Rannsóknarnefnd umferðarslysa, í Morgunblaðinu í dag um alvarlegt umferðarslys sem varð á Dalvegi í Kópavogi um klukkan 16 síðastliðinn miðvikudag þegar gámaflutningabifreið var ekið á hjólreiðamann.
Bifreiðinni var ekið eftir Dalvegi og tók bílstjórinn síðan hægri beygju inn á gámasvæði Sorpu þar sem aðeins er gert ráð fyrir útakstri af svæðinu og innakstur því ekki leyfilegur. Karlmaður á reiðhjóli kom hjólandi eftir göngustíg samhliða veginum og mun hafa ætlað áfram framhjá útakstrinum af gámasvæðinu en varð þá fyrir gámaflutningabifreiðinni.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun áreksturinn hafa verið mjög harður og lærbrotnaði hjólreiðamaðurinn meðal annars við hann. Þegar leitað var eftir upplýsingum um líðan mannsins um kvöldmatarleytið í gær hafði hann verið fluttur á gjörgæsludeild. Að sögn vakthafandi læknis á deildinni er manninum haldið sofandi í öndunarvél og hefur verið síðan hann gekkst undir aðgerðina í fyrrakvöld. Maðurinn er mjög alvarlega slasaður að sögn og verður honum haldið áfram sofandi og undir eftirliti á næstunni.
Enginn titill
Bíll rann niður í sjó
Umferðaróhapp varð á Grenivíkurvegi upp úr klukkan þrjú í dag. Engan sakaði en fólksbíll er ónýtur eftir óhappið.
Maður sem ók inn eftir firðinum, í átt til Akureyrar, fékk skyndilega á móti sér bíl á öfugum vegarhelmingi og stefndi sá í átt til Grenivíkur. Maðurinn sveigði út af veginum til þess að forðast árekstur við bílinn sem stefndi á hann.
Bíllinn staðnæmdist á hjólunum utan við veginn. Ökumaðurinn fór út úr bílnum en þá rann bíllinn af stað, fór fram af klöpp og endaði um 83 metrum neðar í fjörunni. Manninum var að vonum nokkuð brugðið. Hann var með tvo hunda með sér í bílnum en þeir komu hlaupandi upp úr fjörunni og hafði ekki orðið meint af bíltúrnum.
Bíllinn er ónýtur að sögn lögreglunnar á Akureyri. Talsverður halli er þarna niður í fjöruna.
Ekki náðist í ökumanninn sem ók bílnum á öfuga vegarhelmingnum.
Bifreið valt við Siglufjörð
Bifreið valt út af veginum þrjá kílómetra vestan við Siglufjörð skömmu eftir klukkan fjögur í dag. Slysið varð rétt vestan við svokallað jarðsig, samkvæmt lögreglunni á Siglufirði.
Ökumaður bílsins, kona, var ein á ferð og var hún með fullri meðvitund.
Hún var flutt á sjúkrahúsið á Siglufirði til aðhlynningar.
Að sögn lögreglunnar á Siglufirði er bifreiðin mikið skemmd, enda fór hún niður bratta vegöxl
Bifhjólin komin á kreik.
Hinn slasaðist í Vestmannaeyjum þegar hann var að sveigja frá hjólreiðamanni, en féll við það í götuna. Hann var fluttur á Landsspítalann í Reykjavík með sjúkraflugi í gærkvöldi, þar sem gert verður að brotum á fæti hans.









