Gámaflutningabíl ekiđ gegn akstursstefnu
„Það náttúrlega liggur alveg fyrir að hann er að fara þarna gegn akstursstefnu og fer þarna í veg fyrir hjólreiðamanninn.“
Þetta segir Sævar Helgi Lárusson, sérfræðingur hjá Rannsóknarnefnd umferðarslysa, í Morgunblaðinu í dag um alvarlegt umferðarslys sem varð á Dalvegi í Kópavogi um klukkan 16 síðastliðinn miðvikudag þegar gámaflutningabifreið var ekið á hjólreiðamann.
Bifreiðinni var ekið eftir Dalvegi og tók bílstjórinn síðan hægri beygju inn á gámasvæði Sorpu þar sem aðeins er gert ráð fyrir útakstri af svæðinu og innakstur því ekki leyfilegur. Karlmaður á reiðhjóli kom hjólandi eftir göngustíg samhliða veginum og mun hafa ætlað áfram framhjá útakstrinum af gámasvæðinu en varð þá fyrir gámaflutningabifreiðinni.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun áreksturinn hafa verið mjög harður og lærbrotnaði hjólreiðamaðurinn meðal annars við hann. Þegar leitað var eftir upplýsingum um líðan mannsins um kvöldmatarleytið í gær hafði hann verið fluttur á gjörgæsludeild. Að sögn vakthafandi læknis á deildinni er manninum haldið sofandi í öndunarvél og hefur verið síðan hann gekkst undir aðgerðina í fyrrakvöld. Maðurinn er mjög alvarlega slasaður að sögn og verður honum haldið áfram sofandi og undir eftirliti á næstunni.





