-
Nemendur:
- aka yfirleitt of hratt, sérstaklega í beygjum
- draga yfirleitt frekar seint úr hraða
- aka yfirleitt of nálægt næsta bíl á undan
- horfa yfirleitt of stutt fram fyrir bílinn og í kringum sig
- eiga oft erfitt með að skipta um akreinar og fara inn og um hringtorg.
Leiðbeinandinn hefur meiri reynslu, en nemandinn hefur stundum meiri fræðilega þekkingu. Því þarf að vera samvinna á milli leiðbeinanda og nemanda. Leiðbeinandinn er alltaf ábyrgur fyrir akstri bifreiðarinnar í umferðinni.
-
Leiðbeinandinn getur:
- drepið á bílnum
- tekið í handbremsuna
- tekið úr gír
- tekið í stýrið
Veljið léttar leiðir til að byrja með. Úthverfi borgarinnar eru yfirleitt þægilegri en miðbærinn. Gott er að æfa nemandann í rötun jafnframt því að æfa akstur. Því er upplagt að láta hann undirbúa hvern æfingatíma með því að ákveða hvert skuli aka, hvaða leiðir skuli fara og leggja síðan akstursáætlun fyrir leiðbeinanda til samþykktar. Útbúðu hring áður en lagt er af stað í fyrstu ferðirnar og reyndu að fara "réttsælis", því hægri beygjur eru auðveldari en vinstri beygjur.
Umhirða bílsins er mikilvægur liður t.d. að setja eldsneyti á tankinn, mæla loft í dekkjum, skipta um dekk, fara með bílinn í smurningu og þrífa hann.
-
Gátlisti leiðbeinandans:
- gott er að byrja í rólegri umferð og færa sig smátt og smátt í erfiðari aðstæður. Ekki bakka út úr stæðinu heima í fyrsta tímanum. Gerðu það fyrir nemann.
- markmið að æfa nemann við eins fjölbreyttar aðstæður og hægt er
- miða hraðann alltaf við aðstæður - ekki fara yfir leyfðan hámarkshraða. Vegna reynsluleysis getur hann lent í vandræðum og ef hann hefur vanist því að aka hratt í æfingaakstri, mun prófdómarinn vera strangur við hann.
- þjálfa líka í myrkri og rigningu
- þjálfa þegar færi er erfitt vegna hálku eða snjóa. En mikilvægt er að meta aðstæður. Ekki aka í mikilli ófærð eða fljúgandi hálku.
- gott er að hafa aukabaksýnisspegil til að fylgjast með umferð fyrir aftan og augnspegil í hægra neðra horni framrúðu til að fylgjast með nema
Hafðu samband við mig ef þú vilt fá nánari upplýsingar með því að smella á FYRIRSPURN hér fyrir ofan.





