Ökuskóli - ökunám

Ökukennsla, akstursmat, ökuskóli

Kennarinn

Ég útskrifaðist sem ökukennari frá Kennaraháskóla Íslands 1994 og hef síðan þá unnið við kennslu, ýmist sem aðalatvinnu eða með öðru. 

Í kennslunni hef ég verið svo lánsamur að fá að starfa á mismunandi sviðum með frábæru fólki og lært heilmikið af því samstarfi.

Mér bauðst að vinna í Ökuskóla Ökukennarafélags Íslands að námi loknu og kenndi á námskeiðum til almennra ökuréttinda, til aukinna ökuréttinda, og á réttindanámskeiði fyrir verðandi atvinnuleyfishafa í leiguakstri.

Ég sá um námskeiðið ökuskólinn í Ökukennaranámi Kennaraháskóla Íslands þegar hópur nr. 2 var þar í námi og fékk að kynnast verðandi ökukennurum og starfandi ökukennurum á alveg nýan hátt.

Í framhaldi af kennslu minni þar tók ég þátt í að koma á laggirnar Bifhjólaskólanum Aðalbraut með nemendum í náminu og kenndi þar verklega og bóklega kennslu. M.a. gerðum við tilraunir með að hafa blandaða hópa þar sem komu saman þeir sem voru að taka mótorhjólapróf, sem yfirleitt voru reynsluboltar með bílpróf og unglingum sem voru að undirbúa sig undir bílpróf. Reynslan var góð og skemmtunin mikil.

Þegar þessu tímabili lauk setti ég á stofn Ökuskólann akstur og kennsla sem síðan hefur verið verkefnið mitt í ökukennslu. Í dag heitir skólinn ROK-ökuskóli.

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn