Ökuskóli - ökunám
Ökukennsla, akstursmat, ökuskóli
Kennsluáætlun
Námið hefst í
bílnum og fer það alfarið eftir ökunemanum hvað gert er og hversu hratt farið er í hlutina. Hafa ber í huga að þetta er
einstaklingsmiðað nám og ekki er um skúffulausnir að ræða heldur sérsniðið nám fyrir hvern og einn.
- Fræðilegt nám hefst strax í fyrsta tíma með samtali milli ökunema og ökukennara. Við þurfum að finna út hvernig nemanum
hentar best að læra og hver hanns aðferð er til að tileinka sér nýa þekkingu. Ö1er fyrri hluti ökuskólans og
er nauðsynlegt að ljúka þeim áfanga áður en farið er í æfingaakstur með leiðbeinanda.
- Æfingaakstur með leiðbeinanda getur tekið við þegar að neminn hefur náð tökum á bílnum og sjálfum
sér í umferðinni. Í æfingaakstri er verið að æfa það sem hefur verið kennt í ökutímum. Flestir hafa gott af
því að æfa sig meira áður en þeir fara einir út í umferðina, það er þó ekki skylda.
- Fræðilegt námskeið Ö2 er seinni hluti ökuskólans. Þeir sem ekki fara í æfingaakstur
takaÖ2 í beinu framhaldi af Ö1. Ökuskóli 3 er æfingaakstur á plani á svokölluðum
skrikvögnum en þeir eru sérhannaðir til að veita nemanum tilfinningu fyrir því að aka á hálu vegyfirborði og fræðilegi hlutinn
er forvarnarfræðsla í akstri.
- Skriflegt próf, tekið hjá Frumherja, má taka 2 mánuðum
fyrir 17 ára afmælið og eftir að Ö2 er lokið.
- Verkleg kennsla hjá ökukennara tekur við þegar að æfingaakstri er lokið til að undirbúa verklega prófið.
...