- Kostnaður er mismikill og fer það fyrst og fremst eftir tímafjölda nemans í bíl en afskaplega mismunandi er hversu marga tíma ökuneminn þarf til að finna fyrir öryggi og vellíðan úti á götu.
- Samkvæmt kröfum Umferðarstofu þarf hver og einn ökunemi að taka 16-24 tíma áður en hann fer í ökupróf og reynslan er að flestir ökunemar eru að taka á bilinu 20-24 tímar.
|
Ökutímar |
20 x 45 mínútur |
140.000kr |
|
Próftími |
2 x 45 mínútur |
14.000kr |
|
Ökuskóli 1 & 2 |
22 kennslustundir |
30.000kr |
| Verklegt/bóklegt | 33.400 | |
|
Annar kostnaður |
|
13.000kr |
|
Samtals |
|
230.400kr |
- Lengd hverrar kennslustundar er 45 mínútur og kostar hún 7.000 kr. Ökutímar geta þó verið mislangir og fer það eftir viðfangsefni á hverjum tíma. Ef tvöföld kennslustund er tekin kostar hún 14.000 kr. Venjulega er gert upp á 6 tíma fresti en að sjálfsögðu má ræða um annað fyrirkomulag greiðslu í upphafi kennslu og komast að samkomulagi sem hentar í hverju tilfelli fyrir sig.
- Verði breytingar á útreikningi skv. framanskráðu á meðan á æfingaleyfi stendur eða á kennslutímabilinu, breytist verð á ógreiddum kennslustundum til samræmis við það.





