1. Hvernig ber ég mig að?
Þegar þú hefur ákveðið að hefja ökunám byrjar þú á því að ræða við foreldra þína og tekur ákvörðun í samráði við þá. Síðan hefur þú samband við mig, gefur mér upp nafn, heimilisfang og kennitölu. Oft getur verið erfitt að taka upp símann í fyrsta sinn en þegar ísinn er brotinn er framhaldið ekkert vandamál. Eftir að þú hefur farið í fyrsta tímann, færðu næsta tíma bókaðan, og þá ætti að vera ljóst hvernig best er að haga náminu til að það samræmist þínum þörfum. Svo nokkur dæmi séu tekin, þá eru sumir á morgnanna og vilja enda tímann í vinnunni, aðrir fá að skreppa úr vinnunni t.d. í matar eða kaffitíma, aðrir koma eftir vinnu eða skóla, en þetta er eins breytilegt og við erum mörg, aðalatriðið er að láta þetta smella saman við þinn frítíma og þínar þarfir.
2. Hvað þarf ég marga ökutíma?
Þetta er spurning sem flest allir ökukennarar fá hjá nemendum sínum. Því er fljót svarað, fólk er misjafnlega lengi að ná tökum á akstrinum og reynslan hefur sýnt að það er ekki hægt að svara því svo nákvæmt sé hvað hver og einn einstaklingur þarf. Allt hangir þetta saman, hvernig þér gengur, jafnt í bóklega náminu og í bílnum. Æfingaaksturinn hjálpar oftast en þá er æskilegt að æfa sig reglulega t.d. 3x í viku og fara mismunandi leiðir. Umferðarráð gerir þá kröfu að próftakar taki a.m.k. 16 kennslutíma í bílnum áður en mætt er til prófs.
3. Er mikið fall í bílprófinu?
Það hefur stundum borið á því að nemendur hafa fallið, þá sérstaklega í bóklega prófinu, en sjaldnar í akstrinum. Kröfurnar hafa verið auknar síðustu árin og segir það einungis eitt að nemendur þurfa að koma betur undirbúnir í próf.
4. Hvenær get ég tekið prófin?
Þú mátt taka bóklega prófið 2 mánuðum áður en þú verður 17 ára. Akstursprófið máttu taka viku fyrir afmælisdaginn. Þó verður þú að muna að ekki er hægt að skrá þig í próf fyrr en þú ert búin(n) að fara með umsóknina þína til lögreglustjóra eða sýslumanns og hefur greitt gjaldið fyrir skírteinið. Í dag er gjaldið 2200 kr. Bóklega prófið kostar kr. 2200 og er hægt að taka það alla virka daga vikunnar á höfuðborgarsvæðinu.Verklega prófið kostar kr.6200 og ég panta það í samráði við þig. Allir á höfuðborgarsvæðinu taka prófin hjá Frumherja í Reykjavík
5. Hvað er æfingaakstur?
Nú mega allir sem vilja byrja ökunámið 16 ára og fara síðan í æfingaakstur með foreldri eða öðrum fullorðnum á námstímanum. Fyrst þarf viðkomandi að fara í tíma til ökukennara og þegar hann hefur metið nemandann hæfan til að geta ekið einn og hjálparlaust gefur hann út vottorð sem síðan er fyllt út af verðandi leiðbeinanda. Umsóknina þarf að fara með til tryggingafélags bílsins og síðan til lögreglustjóra eða sýslumanns.





