Próflýsing.
Ökupróf skiptist í tvo hluta; fræðilegt próf og verklegt próf. Verklega prófið er tvíþætt,
munnlegt próf og aksturspróf.
Skriflega prófið skal taka fyrst. Standist próftaki ekki próf má hann ekki reyna við sama próf að nýju fyrr en að viku liðinni. Ef sérstaklega stendur á má stytta þennan tíma.
Að loknu hverju prófi tilkynnir prófdómari próftaka hvort hann hafi staðist próf. Óski próftaki sem ekki hefur staðist próf að fá að vita ástæðu þess skal það upplýst. Að jafnaði skal upplýsa próftaka um villur sínar í prófum og það gert að þeim loknum. Frammistaða próftaka á prófi (fræðilegu prófi og verklegu prófi) er metin til stiga.
Skriflegt próf má ekki fara fram fyrr en tveimur mánuðum áður en umsækjandi fullnægir aldursskilyrðum til að fá útgefin ökuréttindi.Skriflega prófið missir gildi ef verklega er ekki tekið innan sex mánaða. Þó má láta það gilda allt sjö mánuðum ef próftaki hefur ekki staðist aksturspróf.
Verklegt próf skal ekki fara fram fyrr en einni viku áður en umsækjandi fullnægir aldursskilyrðum til að fá útgefin ökuréttindi. Ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi má prófið fara fram allt að tveimur vikum áður en tilskildum aldri er náð.
Próftaki má reyna eins oft við próf og hann þarf.