Skriflegt próf.
Prófið er krossapróf sem samanstendur af 30 spurningum hver með þrjá valkosti. Fleiri en einn valkostur getur verið réttur við hverri spurningu.
Verkefnið skiptist í A-hluta og B-hluta, 15 spurningar í hvorum hluta. Villa telst vera ef kross vantar eða honum ofaukið. Próftaki stenst ekki prófið ef
hann gerir fleiri en tvær villur í A-hluta eða fleiri en sjö villur í heild m.ö.o. 43 stig af 45 í A-hluta eða 83 stig af 90 í heild.
Próftaki fær allt að 45 mínútur til að leysa úr verkefni.
Í skriflegu prófi skal spyrja um atriði er varða umferðarlöggjöf, viðurkennda aksturshætti, bifreiðina, mannlega þætti og
viðbrögð á slysstað. Prófað er úr atriðum í eftirtöldum flokkum:
- umferðarreglum, einkum að því er varðar umferðarmerki, þar með taldar merkingar, tákn, forgang í umferð og hraðatakmarkanir
- mannlegum þáttum, ábyrgð og skyldur ökumanns, s.s. mikilvægi þess að sýna öðrum vegfarendum athygli og tillitssemi. Einnig skynjun,
mati og ákvörðunum, einkum varðandi viðbragðstíma og breytingar á aksturslagi eftir neyslu áfengis, eiturlyfja og annarra lyfja, hugarástand og
þreytu
- grundvallarreglum um hæfilegt bil milli ökutækja, hemlunarvegalengdir og stöðugleika ökutækisins við mismunandi veðurskilyrði og ástand
vega
- áhættuþáttum vegna mismunandi ástands vega, einkum með breytingum á veðri og á mismunandi tímum sólarhringsins. Einnig
eiginleikum mismunandi gerða af vegum og lagaákvæði sem gilda um þá
- sérstökum áhættuþáttum vegna reynsluskorts annarra vegfarenda einkum þeirra hópa sem helst eru berskjaldaðir, s.s. börn, gangandi
vegfarendur, hjólreiðarmenn og fólk með skerta hreyfi- eða skyngetu. Einnig áhættu í umferðinni og akstur hinna ýmsu tegunda
ökutækja og mismunandi útsýn ökumanna þeirra
- almennum og sértækum reglum s.s. um skjöl sem fylgja notkun ökutækja, fyrstu viðbrögð á slysstað og öryggisþáttum
varðandi hleðslu ökutækis og farþegaflutning, skráningu, eftirlit og tryggingar ökutækja
- öryggisþáttum um öryggi ökumanns, farþega og annarra vegfarenda s.s. um notkun og reglur um bílbelti og öryggisbúnað fyrir börn,
skyndihjálp og fyrstu viðbrögð á slysstað, eitranir af völdum kolsýrlings, reglur um notkun ökutækisins að því er varðar
tillit við umhverfi (mengun, hávaði o.fl.) og um bruna- og sprengihættu af uppgufun eldfimra efna.
Einstaklingspróf
Geti próftaki ekki með góðu móti tjáð sig á skriflegu prófi getur hann sótt um að taka hliðstætt próf munnlega. Einstaklingspróf kallast þau skriflegu próf sem próftaki fær lesaðstoð við að leysa eða leysir án þess að sitja í hópprófi. Slíkt er gert fyrir eftirtalda hópa:
A. Lesblinda
B. Ólæsa eða illa læsa
C. Þá sem eiga erfitt með að taka krossapróf (t.d. fullorðið fólk, þá sem eru óvanir því að taka skrifleg krossapróf, mjög óöruggt með sjálft sig, á mjög erfitt með að einbeita sér eða er haldið miklum prófkvíða).
D. Þá sem eiga við tungumálaerfiðleika að stríða.
Að jafnaði er ekki boðin einstaklingspróf fyrir fólk í hópum B og C fyrr en eftir að próftaki hefur gert a.m.k. eina árangurslausa tilraun í venjulegu hópprófi.
Erlend próf og túlkpróf
Skriflegt próf er hægt að taka á nokkrum erlendum tungumálum, sænsku, dönsku, norsku, ensku og spænsku. Ef próftaki getur ekki leyst skriflegt próf á ofantöldum tungumálum getur hann sótt um að taka prófið með aðstoð túlks sem verkstjóri ökuprófa viðurkennir. Skal þá prófdómari vera viðstaddur prófið og sjá til þess að prófreglum fyrir einstaklingspróf sé framfylgt.





