Verklegt próf.
Við aksturspróf skal prófdómari sitja við hlið próftaka. Prófdómari skal því aðeins hafa afskipti af stjórn
bifreiðar að umferðaröryggi krefjist. Hann skal eftir því sem unnt er láta próftaka afskiptalausan en fylgjast vel með aksturháttum hans,
gæta að hvort hann fer eftir umferðarreglum og hvort hann ekur eðlilega miðað við aðstæður. Nauðsynlegar ábendingar og fyrirmæli ber
prófdómara að gefa greinilega og í tæka tíð þannig að próftaka gefist ráðrúm til að skilja þær og
framkvæma. Prófdómari má ekki gefa fyrirmæli sem leiða myndu til umferðarbrota ef hlýtt væri. Af 100 stigum þarf próftaki að
ná 80 stigum til að standast aksturspróf.
akstursprófi er prófað er úr atriðum í eftirtöldum flokkum:
Undirbúningur og frágangur ökutækis.
Próftaki verður að geta
- ræst hreyfil rétt, spennt öryggisbelti og fest þau rétt og lagað sæti og spegla að sínum þörfum.
- gengið rétt frá bifreið þegar henni er lagð og hún yfirgefin s.s. slökkt á rúðuþurrkum, miðstöð og ljósum,
sett í gír og handhemil á, lokað gluggum, fjarlægt verðmæti úr bifreið og læst henni.
Tæknileg leikni á ökutæki.
Próftaki verður að geta beitt stjórntækjum á viðunandi hátt. Hann verður að geta:
- notað rúðuþurrkur þegar við á, stjórnað miðstöð og búnaði til að eyða móðu eða ísingu og
beitt ljósum s.s. aðalljósum, stöðuljósum og þokuljósum með viðeigandi hætti
- sýnt leikni og öryggi í notkun stjórntækja s.s. gíra, tengsla og hemla þannig að akstur verði farþegum lipur og
þægilegur
- tekið beygjur á eðlilegum hraða og hæfilega víðar eða krappar
- ekið af öryggi, á eðlilegum hraða og miðað við aðstæður, s.s. á malarvegum, í hálku, myrkri, snjókomu eða við
aðrar veðuraðstæður sem upp geta komið í akstursprófi
- ekið afturábak af öryggi og nákvæmni, í beinni stefnu og tekið hægri- og vinstribeygjur fyrir horn á sömu akrein
- lagt ökutækinu og skilið eftir stöðubil (samhliða, á ská eða hornrétt) bæði framan og aftan við það, bæði
á jafnsléttu og upp eða niður í móti
- tekið af stað í brekku óhikað og án óeðlilegs bakrennslis, með eða án notkunar handhemils
- nauðhemlað ökutæki, samkvæmt skipun prófdómara, með góðu viðbragði, af öryggi og hámarksáhrifum hemla.
Hæfni í umferðinni og fylgni við umferðarreglur.
Próftaki verður sýna að hann geti, við venjuleg umferðarskilyrði, eftirtalin atriði af fullkomnu öryggi og gert nauðsynlegar varúðarráðstafanir:
- staðsett bifreið rétt á akrein þar sem fyllsta öryggis er gætt og valið rétta akrein miðað við hraða, aðra umferð og
áframhaldandi akstur
- notað að staðaldri hægri akrein til almenns aksturs og virði reglur um gildi mið- og deililína
- virt reglur um hámarkshraða og stilli hraða í samræmi við aðstæður hverju sinni og haldið hæfilegu bili að næsta
ökutæki
- haft fulla athygli á öðrum vegfarendum sem eru í námd og skipta máli fyrir próftaka og sýnt þeim tillitssemi, sérstaklega gangandi
vegfarendum, og geri ekkert sem gæti sett þá í hættu
- virt hægri forgang við mismunandi aðstæður og gæti varúðar þar sem aðrir eiga forgang
- virt stöðvunarskyldu undir öllum kringumstæðum og sýnt rétt viðbrögð við gatnamót með stöðvunarskyldu
- sýnt rétta aksturshætti á ljósastýrðum gatnamótum, hringtorgum og öðrum vegamótum og fylgt fyrirmælum
umferðarmerkja
- gefið stefnumerki, á réttri stundu og stað þar sem það á við og gefi öðrum vegfarendum ekki misvísandi merki sem geta skapað
hættu
- brugðist við aðsteðjandi hættu með skjótum og árangursríkum aðferðum með öryggi allra í huga.
Prófbifreiðin
Við sæti ökukennara skal komið fyrir sérstökum fetlum, þannig að prófdómari geti, óháð nemanda, kúplað frá og hemlað bifreiðinni. Fetlar próftaka mega ekki virka á fetla prófdómara. Ef bifreiðin er búin læsivörn á hemlum (ABS), spólvörn eða hallahemli skal hafa rofa fyrir þann búnað.
Ef bifreiðin er búin sjálfskiptingu skal gírstöng koma í stað fetils til þess að rjúfa aflrás, og komið þannig fyrir að ökukennari geti stjórnað henni.
Bifreiðin skal búin baksýnisspegli fyrir ökumann á hægri hlið og eftirtöldum speglum fyrir ökukennara:
- Baksýnisspegli inni í bifreið.
- Flötum augnspegli (eða því sem næst) til að fylgjast með athygli nemanda augnspegill (í neðra, hægra horni framrúðu) sem
sýnir andlit próftaka.
- Kúptum baksýnisspegli á hægri hlið. Nota má prófbifreið með sjálfvirkri gírskiptingu:
- ef próftaki fullnægir ekki almennum kröfum um líkamshreysti og getur ekki með góðu móti ekið bifreið án slíks
búnaðar. Skulu ökuréttindi þá takmörkuð við þannig bifreið.
- ef próftaki hefur áður fengið útgefin réttindi til aksturs bifreiðar, s.s. endurtekin ökupróf vegna sviptingar eða
síðbúinnar endurnýjunar ökuskírteinis.
Prófdæming
Við mat á villum í verklegu prófi er unnið eftir viðmiðunarkvarða akstursprófa fyrir hvern réttindaflokk. Viðmiðunarkvarðarnir eru gerðir í samráði við Ökukennarafélag Íslands og segja þeir til um hvað telst villa og hversu alvarleg hún er.
Umferðarstofa ákveður hvar ökupróf (fræðileg próf og verkleg próf) fara fram. Aksturspróf skal halda þar sem reynir á sem flesta þætti sem upp geta komið í daglegri umferð. Hæfni og leikni próftaka má að hluta prófa á sérstöku svæði. Hæfni próftaka í umferð skal prófuð á vegum í þéttbýli og utan þess, við mismikinn umferðarþunga, þar sem akstursskilyrði geta talist dæmigerð fyrir þá erfiðleika sem geta orðið á vegi ökumanna, þannig að verulega reyni á ökuhæfni próftaka.





