Bilpróf
Gámaflutningabíl ekið gegn akstursstefnu
hjólreiðamanninn."
Þetta segir Sævar Helgi Lárusson, sérfræðingur hjá Rannsóknarnefnd umferðarslysa, í Morgunblaðinu í dag um alvarlegt
umferðarslys sem varð á Dalvegi í Kópavogi um klukkan 16 síðastliðinn miðvikudag þegar gámaflutningabifreið var ekið á
hjólreiðamann.
Bifreiðinni var ekið eftir Dalvegi og tók bílstjórinn síðan hægri beygju inn á gámasvæði Sorpu þar sem aðeins er
gert ráð fyrir útakstri af svæðinu og innakstur því ekki leyfilegur. Karlmaður á reiðhjóli kom hjólandi eftir
göngustíg samhliða veginum og mun hafa ætlað áfram framhjá útakstrinum af gámasvæðinu en varð þá fyrir
gámaflutningabifreiðinni.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun áreksturinn hafa verið mjög harður og lærbrotnaði hjólreiðamaðurinn meðal annars við
hann. Þegar leitað var eftir upplýsingum um líðan mannsins um kvöldmatarleytið í gær hafði hann verið fluttur á
gjörgæsludeild. Að sögn vakthafandi læknis á deildinni er manninum haldið sofandi í öndunarvél og hefur verið síðan hann gekkst
undir aðgerðina í fyrrakvöld. Maðurinn er mjög alvarlega slasaður að sögn og verður honum haldið áfram sofandi og undir eftirliti á
næstunni.
Enginn titill
mbl.is / Hjörtur
Umferðaróhapp varð á Grenivíkurvegi upp úr klukkan þrjú í dag. Engan sakaði en fólksbíll er ónýtur eftir
óhappið.
Maður sem ók inn eftir firðinum, í átt til Akureyrar, fékk skyndilega á móti sér bíl á öfugum vegarhelmingi og stefndi
sá í átt til Grenivíkur. Maðurinn sveigði út af veginum til þess að forðast árekstur við bílinn sem stefndi á
hann.
Bíllinn staðnæmdist á hjólunum utan við veginn. Ökumaðurinn fór út úr bílnum en þá rann bíllinn af
stað, fór fram af klöpp og endaði um 83 metrum neðar í fjörunni. Manninum var að vonum nokkuð brugðið. Hann var með tvo hunda með
sér í bílnum en þeir komu hlaupandi upp úr fjörunni og hafði ekki orðið meint af bíltúrnum.
Bíllinn er ónýtur að sögn lögreglunnar á Akureyri. Talsverður halli er þarna niður í fjöruna.
Ekki náðist í ökumanninn sem ók bílnum á öfuga vegarhelmingnum.
Bifreið valt við Siglufjörð
rétt vestan við svokallað jarðsig, samkvæmt lögreglunni á Siglufirði.
Ökumaður bílsins, kona, var ein á ferð og var hún með fullri meðvitund.
Hún var flutt á sjúkrahúsið á Siglufirði til aðhlynningar.
Að sögn lögreglunnar á Siglufirði er bifreiðin mikið skemmd, enda fór hún niður bratta vegöxl
Bifhjólin komin á kreik.
Tveir bifhjólamenn slösuðust í umferðinni í gærkvöldi en hvorugur lífshættulega. Annar í
Baugshlíð í Mosfellsbæ, en hann mun hafa lent í árkestri við bíl. Ekki er nánar vitað um tildrög slyssins.
Hinn slasaðist í Vestmannaeyjum þegar hann var að sveigja frá hjólreiðamanni, en féll við það í götuna. Hann var fluttur
á Landsspítalann í Reykjavík með sjúkraflugi í gærkvöldi, þar sem gert verður að brotum á fæti hans.
Umferðaróhapp undir Bústaðabrú
aðskotahlut á götunni með þeim afleiðingum að sprakk á tveimur dekkjum hans og hluturinn kastaðist í tvo aðra bíla sem skemmdust
nokkuð. Dráttarbíll þurfti að sækja þann bíl sem keyrði á hlutinn og olli það nokkrum töfum á umferð enda
töluverð umferð á þessum tíma.
Engin slys urðu á fólki samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.