Mig vantar ökukennara

Fyrst er að ákveða og síðan að framkvæma. Hafðu samband við okkur núna til að hefja ökunámið.

4 + 2 =

Sími

698 8833 – Berglind

847 1900 – Einar

Ökunám

Þegar þú hefur ákveðið að hefja ökunám byrjar þú á því að ræða við foreldra þína um kosti og galla við það að hefja ökunám. Síðan hefur þú samband við ökukennarann, og pantar tíma, eða þú forvitnast um hvernig ökunámið fari fram, hvernig best er að taka ökuskólann og hvenær þú getir farið í skriflegt ökupróf eða verklegt.

Oft getur verið erfitt að taka upp símann í fyrsta sinn en þegar ísinn er brotinn er framhaldið ekkert vandamál. Eftir að þú hefur farið í fyrsta tímann, færðu næsta tíma bókaðan, og þá ætti að vera ljóst hvernig best er að haga náminu til að það samræmist þínum þörfum.

Svo nokkur dæmi séu tekin, þá eru sumir á morgnanna og vilja enda tímann í vinnunni, aðrir fá að skreppa úr vinnunni t.d. í matar eða kaffitíma, aðrir koma eftir vinnu eða skóla. Þetta er eins breytilegt og við erum mörg, aðalatriðið er að láta þetta smella saman við þinn tíma og þínar þarfir.

Einar Ökukennari

Einar útskrifaðist sem ökukennari frá Kennaraháskóla Íslands 1994 og hefur síðan þá unnið við ökukennslu, ýmist sem aðalatvinnu eða með öðru. Í kennslunni hefur hann verið svo lánsamur að fá að starfa á mismunandi sviðum með frábæru fólki og lært heilmikið af því samstarfi.

Að loknu námi kenndi hann í Ökuskóla Ökukennarafélags Íslands sem í dag heitir Ökuskólinn Mjódd og kenndi á námskeiðum til almennra ökuréttinda, sem er kallað B-réttindi í dag. Einnig kenndi hann námskeið til aukinna ökuréttinda, og á réttindanámskeiði fyrir verðandi atvinnuleyfishafa í leiguakstri.

Einar sá um námskeiðið ökuskólinn í Ökukennaranámi Kennaraháskóla Íslands þegar hópur nr. 2 og nr.3 var þar í námi. Þar kynntist hann verðandi ökukennurum og starfandi ökukennurum á alveg nýan hátt. Í framhaldi af kennslunni þar tók hann þátt í að koma á laggirnar Bifhjólaskólanum Aðalbraut með nemendum í náminu og kenndi þar verklega og bóklega kennslu.

Berglind ökukennari

Berglind er útskrifuð sem ökukennari frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Hún býr í Hafnarfirði og er einbeittur stuðningsmaður F.H. enda á hún tvo drengi sem njóta góðs af íþróttaiðkun hjá F.H.

Drengirnir eru einnig nemendur í Öldutúnsskóla og hefur hún tekið virkan þátt í foreldrastarfi skólans.

Berglind hefur undanfarin ár starfað sem deildarstjóri búningadeildar Þjóðleikhússins og kann því að klæðskerasníða námsáætlun fyrir hvern og einn ökunema.

Heyrðu í henni í síma 698 8833

 

Kostnaður

Kostnaður er mismikill og fer það fyrst og fremst eftir því hversu marga ökutíma neminn fær í kennslubílnum, en afskaplega mismunandi er hversu marga tíma þarf til að finna fyrir öryggi og vellíðan úti á götu. Reynslan hefur kennt mér að til þess að akstur með leiðbeinenda (æfingaakstur) gagnist ökunemanum sem best þarf hann að hafa trú á eigin getu og leikni til að undirbyggja þessa trú. Ef leiðbeinandinn finnur fyrir þessu öryggi er hann venjulega viljugri að fara út að æfa með ökunemanum og miðla af sinni þekkingu og akstursreynslu.

Samkvæmt kröfum Samgöngustofu þarf hver og einn ökunemi að taka 17-25 tíma áður en hann fer í verklegt ökupróf, flestir ökunemar eru að taka á bilinu 20-25 tíma, sumir meira aðrir minna. Lengd hverrar kennslustundar er 45 mínútur að öllu jöfnu en ökutímar geta þó verið mislangir og fer það eftir viðfangsefni á hverjum tíma.

Samgöngustofa hefur eftirlit með ökuskólum, ökukennslu og ökuprófum á öllu landinu. Frumherji skráir ökunema í próf og prófar þá í umboði Samgöngustofu. Upplýsingar um prófskráningu er að finna á heimasíðu Frumherja, www.prof.is.

Ökukennsla

Fjöldi tíma

Kostnaður tíma

Heildarkosnaður

Ökutímar

12 * 45 mínútur

15.900 kr

190.800 kr

Ökupróf

2*45 mínútur

31.800 kr

31.800 kr

Ö-1 og Ö-2

22 kennslustundir

22.000 kr

22.000 kr

Ö-3

5 kennslustundir

53.900 kr

53.900 kr

Annað

Frumherji og sýslumaður

Prófheimilid og próftökugjald

27.202 kr

Samtals

325.702 kr

Algengar spurningar

Hvenær get ég byrjað að læra á bíl ?

Þegar þú verður 16 ára getur þú byrjað að læra á bíl. Ef þú vilt byrja á 16 ára afmælisdaginn þá er gott að hafa samband við mig tímanlega svo ekkert fari úrskeiðis. Stundum skipuleggja foreldrar byrjunina þannig að ökuneminn veit ekki fyrr en hann er vakinn á afmælisdeginum og þegar hann er vel vaknaður og búinn að borða morgunmat er bankað og fyrir utan stendur ökukennarinn, ég, og bíð þér í fyrsta ökutímann.

Hvað þarf ég að taka marga ökutíma ?

Þetta er spurning sem flest allir ökukennarar fá hjá nemendum sínum. Því er fljótt svarað, fólk er misjafnlega lengi að ná tökum á akstrinum og reynslan hefur sýnt að það er ekki hægt að svara því svo nákvæmt sé hvað hver og einn einstaklingur þarf. Allt hangir þetta saman, hvernig þér gengur, jafnt í bóklega náminu og í bílnum. Æfingaaksturinn hjálpar oftast en þá er æskilegt að æfa sig reglulega t.d. 3x í viku og fara mismunandi leiðir.

Hvernig panta ég tíma í ökukennslu ?

Þú getur hringt í mig í síma 847 1900, eða fyllt út umsókn hérna, þú getur líka fundið mig á facebook hér.

Hvað er ökunámsbók ?

Ökunámsbók er samskipta- og upplýsingabók allra þeirra er koma að ökunámi. Bókin er eign nemandans og sýnir hún feril ökunáms frá upphafi þar til ökupróf er staðið. Hún skal höfð með í alla kennslutíma, bóklega og verklega. Hún er lögð inn til sýslumanns ef sótt er um æfingaleyfi sem og við komu í próf. Prófdómarar votta í ökunámsbók þegar nemandi stenst skriflegt og verklegt ökupróf.

Hvað er gert í ökuskóla og ökugerði ?

Á námskeiðum er farið yfir grundvallaratriði er snerta skilning á umferðinni, helstu umferðarreglur, umferðarmerki, umferðarsálfræði, verkefni unnin o.fl. Einnig er aðstoðað við undirbúning ökuprófs. Lengd námskeiða er 25 kennslustundir og er þeim skipt í fyrsta hluta (Ö1), annan hluta (Ö2) og þriðja hluta (Ö3). Ætlast er til að Ö1 sé tekinn fyrir æfingaakstur með leiðbeinanda og Ö2 áður en farið er í skriflega prófið. Ö3 fer fram í ökugerði að jafnaði stuttu fyrir próf, en í undantekningartilvikum er hægt að taka Ö3 á fyrstu þremur árunum eftir að bráðabirgðaskírteini er fengið en þó áður en fullnaðarskírteini er gefið út. Í ökugerði er líkt eftir aðstæðum þar sem veggrip minnkar og reynt á samspil hraða og veggrips með því markmiði að neminn geri sér ljóst hversu auðvelt og fyrirvaralaust er hægt að missa stjórn á bifreið. Fjallað er sérstaklega um öryggis- og verndarbúnað bifreiða, áhrif áfengis og annarra vímugjafa sem og þreytu á aksturshæfni.

Hvenær má ég taka bílpróf ?

Þú mátt taka bóklega prófið 2 mánuðum áður en þú verður 17 ára. Akstursprófið máttu taka viku fyrir afmælisdaginn. Þó verður þú að muna að ekki er hægt að skrá þig í próf fyrr en þú ert búin(n) að fara með umsóknina þína til sýslumanns og hefur greitt gjald fyrir skírteinið. Allir á höfuðborgarsvæðinu taka prófin hjá Frumherja í Reykjavík eða Hafnarfirði.

Hvað felst í almennum ökuréttindum, B-réttindum ?

Eftir að hafa staðist prófið færðu ökuskírteini útgefið. Almenn ökuréttindi gefa rétt til að aka fólks- eða sendibifreið sem er ekki þyngri en 3.500 kg og með sæti fyrir mest 8 farþega auk ökumanns. Bifreiðin má vera með tengdan eftirvagn eða tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd, eða sem er meiri en 750 kg að leyfðri heildarþyngd, en þá má leyfð heildarþyngd beggja ökutækja ekki vera meiri en 3.500 kg samtals. Ennfremur máttu aka léttu bifhjóli (skellinöðru) og bifhjóli á þremur eða fleiri hjólum. Sá sem er yngri en 21 árs má þó ekki stjórna bifhjóli á þremur hjólum sem er aflmeira en 15 kW. Einnig máttu aka torfærutæki t.d. vélsleða, dráttarvél og vinnuvél í umferð en þó ekki vinna á hana, til þess þarf vinnuvélaréttindi.

Hvað kostar allur pakkinn, bílpróf með öllu ?

Það fer algjörlega eftir því hversu margir ökutímar eru nauðsynlegir, en ef við reiknum með lágmarksfjölda ökutíma þá er heildarkostnaður um 300.000kr. En þú getur séð nákvæmari útreikninga hér.

Má ég læra á sjálfskiptan bíl ?

Þú mátt læraá sjálfskiptan bíl og taka próf á slíkan bíl með takmörkun í ökuskírteini. Ekki þarf lengur heilbrigðisástæður til þess. Sá sem velur þennan kost fær tákntöluna 78 í ökuskírteinið sem takmarkar ökuréttindin við sjálfskiptan bíl.

Hvað er æfingaakstur ?

Nú mega allir sem vilja byrja að læra á bíl 16 ára og fara síðan í æfingaakstur með foreldri eða öðrum fullorðnum á námstímanum. Fyrst þarf viðkomandi að fara í tíma til ökukennara og þegar hann hefur metið nemandann hæfan til að geta ekið einn og hjálparlaust gefur hann út vottorð sem síðan er fyllt út af verðandi leiðbeinanda. Umsóknina þarf að fara með til lögreglustjóra eða sýslumanns, sem skoðar hvort leiðbeinandi hafi gerst sekur um umferðalagabrot sem komi þá í veg fyrir að hann geti verið leiðbeinandi í æfingaakstri.

Hvað kostar einn ökutími ?

Ökutíminn kostar 11.900 krónur.

Hvenær get ég fengið fullnaðarskírteyni ?

Ef þú ekur villulaust í 12 mánuði eftir að þú hefur fengið ökuréttindi þá máttu koma í akstursmat til mín og fer það þannig fram að við fáum okkur bíltúr, spjöllum um hvernig þú ert að keyra og sendum síðan tilkynningu til Sýslumanns um að þú hafir staðist akstursmat. Einfalt og sársaukalaust

Skráðu þig í ökutíma núna!

Oft getur verið erfitt að taka upp símann í fyrsta sinn en þegar ísinn er brotinn er framhaldið ekkert vandamál. Hringdu í síma;

 

698 8833 – Berglind

Hafa sambandVerðskrá